Varahlutaverslun
Varahlutir í lyftara, landbúnaðartæki og vinnuvélar í höfuðstöðvunum á Dalvegi. Starfsfólkið hefur áralanga reynslu – og ef hlutur er ekki til á lager fæst hann í flestum tilvikum innan sólarhrings.
13.000+Vörunúmer á lager
24 klst.Flestir sérpantaðir hlutir
3.100 kr.Smásending út á land, m. vsk.
24/7Neyðarþjónusta utan opnunartíma
Sendingaþjónusta út á land
Í samstarfi við Bílanaust sendum við smásendingar í verslanir þeirra á Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum.
| Selfoss | Samdægurs ef pantað er fyrir hádegi |
|---|---|
| Akureyri og Egilsstaðir | Næsta virka dag |
| Verð | 3.100 kr. með vsk. á sendingu |
Hámarksstærð smásendinga
| Þyngd | 25 kg |
|---|---|
| Lengd | 100 cm |
| Breidd og hæð | 60 × 60 cm |
Sending úrf að komast fyrir í fólksbíl og einn einstaklingur að geta borið hana. Ekki er tekið við brettavöru eða mjög þungum hlutum.
Partamyndir og partanúmer
Partamyndir og partanúmer fyrir Case IH og New Holland eru aðgengileg án endurgjalds. Ertu ekki viss um númerið? Sendu okkur gerð og raðnúmer tækisins og við finnum hlutinn.